25.08.2021
Lýsi hefur ákveðið að innkalla allar vörur frá fyrirtækinu sem innihalda karnitín- og kalktöflur, vegna þess að í þeim hefur greinst etýlenoxíð.
Etýlenoxíð er varnar- og sótthreinsiefni sem óheimilt er að nota við framleiðslu matvæla á Evrópska efnahagssvæðinu. Töflurnar eru framleiddar í Bretlandi og greindist etýlenoxíð í kalsíumkarbónati sem notað var í töflurnar. Kalsíumkarbónatið var frá Indlandi.
Þetta efni hefur verið að greinast í nokkrum fjölda matvæla og hafa margar vörur verið innkallaðar á Íslandi og víðar í Evrópu vegna þess.
Etýlenoxíð hefur ekki bráða eiturvirkni en langtímaneysla er varasöm.
Um er að ræða eftirtaldar vörur:
OMEGA3 KALK / D-VÍTAMÍN - Öskjur með 60 kalktöflum og 30 lýsishylkjum ásamt álþynnum (30 dagskammtar)
OMEGA3 CALCIUM / VITAMIN D (enskar umbúðir í netsölu) – Öskjur með 60 kalktöflum og 30 lýsishylkjum – álþynnur (30 dagskammtar)
SPORTÞRENNA – Öskjur með 32 karnitíntöflum, 16 fjölvítamíntöflum og 16 lýsishylkjum – álþynnur (16 dagskammtar)
Viðskiptavinir sem hafa keypt ofangreindar vörur eru beðnir um að neyta þeirra ekki. Hægt er að skila þeim í verslunina þar sem þær voru keyptar gegn fullri endurgreiðslu.