Heilsa
Heilsusamleg áhrif sjávarfangs eru orðin vel þekkt í dag og hafa þau nær eingöngu verið þökkuð ómega-3 fjölómettuðu fitusýrunum EPA og DHA. Ómega-3 fitusýrur getur líkaminn ekki framleitt sjálfur og þarf því að fá þær úr fæðunni. Mest fáum við af ómega-3 fitusýrunum EPA og DHA með neyslu lýsis og fiskmetis.
Lýsi hefur lengi verið verðmæt útflutningsvara Íslendinga og er þess meðal annars getið í Íslendingasögunum. Snemma á síðustu öld uppgötvuðu menn loksins D-vítamín og heilsusamleg áhrif þess. Þar sem þorskalýsi er ein mesta uppspretta D-vítamíns varð það fljótt vinsælt hráefni til framleiðslu D-vítamíns. Það var einmitt í kjölfar þess sem LÝSI var stofnað árið 1938.
Um miðja síðustu öld voru fjölómettaðar fitusýrur uppgötvaðar í dýrum og plöntum. Það var þó ekki fyrr en í lok 7. áratugarins að sýnt var fram á verndandi áhrif ómega-3 fitusýra úr sjávarfangi gegn hjarta- og æðasjúkdómum. Síðar hafa þúsundir vísindagreina og faraldsfræðilegra rannsókna sýnt fram á ýmis heilsusamleg áhrif ómega-3 fitusýranna, þó aðallega EPA og DHA.
Í fyrstu einblíndu vísindamenn á heilsusamleg áhrif EPA á hjarta- og æðasjúkdóma. Nú hefur áhugi manna vaknað á DHA og jákvæðum áhrifum þess á meðgöngu, fóstur, þroska heila og taugakerfis og ýmsa geðræna sjúkdóma.
Á þessum hluta vefsins er að finna útdrætti úr áhugaverðum ritrýndum vísindagreinum sem fjalla um ýmis heilsusamleg áhrif lýsis og fiskmetis.