Magnvara

Þótt LÝSI sé ef til vill þekktast fyrir þorskalýsið og ýmsar aðrar afurðir, sem seldar eru í verslunum á Íslandi, felst starfsemi fyrirtækisins samt að mestu leyti í útflutningi á ýmsum fiskiolíum. Hér má nefna þorskalýsi, túnfisklýsi, laxalýsi, ómegalýsi, hákarlalýsi og skvalen svo það helsta sé nefnt. Þessar vörur og fleiri til eru seldar í stórum einingum; 190 kg tunnum og 20 tonna tankgámum, og eru kaupendur erlendir framleiðendur sem endurpakka afurðunum eða nota þær sem hráefni í vörur sínar.
 
Hér er aðallega um lýsi til manneldis að ræða en þó framleiðir fyrirtækið einnig lýsi og lifrarmjöl fyrir fiskeldi og sem dýrafóður.  Nýjasti afurðaflokkurinn leit dagsins ljós undir lok árs 2008 þegar framleiðslulína fyrir þykkni var tekin í notkun.  Þykkni er m.a. notað í hylki  og er þá búið auka hlut DHA og EPA, eftirsóttu fitusýranna, í blöndunni.

Ný verksmiðja var tekin í notkun árið 2005 og breytti hún miklu hvað varðar gæði vörunnar hvort heldur hún er keypt í flösku í búð á Íslandi eða í tunnum af einum hinna fjölmörgu erlendu viðskiptavina. Verksmiðjan er ein hin fullkomnasta sinnar tegundar í heiminum og búin háþróuðum tækjum til lýsisframleiðslu. Mikil áhersla er lögð á gæði vörunnar og fer öll framleiðsla fram samkvæmt ströngustu gæðastöðlum en LÝSI framleiðir vörur sínar samkvæmt GMP lyfjaframleiðsluleyfi frá Lyfjastofnun ásamt ISO 9001 og HACCP gæðastöðlum. Vörur LÝSIS uppfylla allar kröfur lyfjaskráa bæði í Evrópu og Bandaríkjunum.