Neytendavara

LÝSI er auðvitað þekktast fyrir gamla, góða þorskalýsið og aðrar lýsistegundir en nú á dögum framleiðir fyrirtækið fjölmargar tegundir af fæðubótarefnum í fljótandi og föstu formi. Tegundir lýsis eru fleiri en áður og það bragðast öðruvísi en áður; er mun bragðminna og nánast bragðlaust eða bætt með bragðefnum fyrir þá sem það kjósa.

Þorskalýsið inniheldur fjölómettuðu ómega-3 fitusýrurnar, EPA og DHA, sem eru okkur lífsnauðsynlegar. Það inniheldur einnig A, D og E vítamín. D vítamín gegnir mikilvægu hlutverki við verndun beina og er öllum nauðsynlegt.

Ufsalýsi velja þeir sem sækjast eftir hærra hlutfalli af A og D vítamínum. Þeir sem vilja taka inn meira af heilsubætandi ómega-3 fitusýrum geta tekið samhliða  ómega-3 fiskiolíu í fljótandi formi eða í perlum.

Auk afurða unnum úr fiskiolíu hefur LÝSI einnig verið leiðandi í þróun og markaðssetningu á fæðubótarefnum og vítamínum og skal þar fyrst nefna Heilsutvennuna góðu sem hefur verið með söluhæstu vörum í sínum flokki í áraraðir.

Hér til vinstri má smella á afurðirnar til að kynnast þeim og eiginleikum þeirra betur.