Omega-3 tyggiperlur

Omega-3 tyggiperlur eru eins og nafnið gefur til kynna tyggjanlegar perlur sem innihalda Omega-3 fiskiolíu auk D-vítamíns.

Perlurnar eru með góðu ávaxtabragði og henta börnum sérlega vel en einnig þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að nota fljótandi lýsi eða kyngja perlum.

Gerðar hafa verið fjölmargar rannsóknir á áhrifum Omega-3 fitusýra, einkum EPA og DHA, sem birst hafa í vísindaritum víða um heim og jafnframt er fjallað um jákvæða eiginleika þeirra í fjölmiðlum með reglulegu millibili.

Því hefur meðal annars verið haldið fram að Omega-3 fiskiolía hafi jákvæð áhrif á geðheilsu manna og á hjarta- og æðakerfi og hún dragi úr liðverkjum og morgunstirðleika. Omega-3 fitusýrur hafa mikilvægu hlutverki að gegna við uppbyggingu heila og miðtaugakerfis og eru taldar hafa jákvæð áhrif á sjón.

Rannsóknir sýna að börn sem fá nægilegt magn af Omega-3 standa sig að öllu jöfnu betur í skóla en þau börn sem skortir Omega-3.

Vissir þú að starfandi er hópur sérfræðinga, svokallað D-vítamínráð (e. Vitamin D Council) þar sem hvatt er til aukinnar inntöku á D-vítamíni? Á heimasíðu ráðsins www.vitamindcouncil.com er greint frá hversu mikilvægu hlutverki D-vítamín hefur að gegna í líkamanum, ekki eingöngu til að stuðla að beinvernd, heldur er einnig talið að D-vítamínskortur geti haft alvarlegar afleiðingar á heilsu almennt.

D-vítamín er ekki að finna í mörgum fæðutegundum og því þarf að huga sérstaklega að inntöku þess.
Hver Omega-3 tyggiperla inniheldur 2,5 µg (50% RDS*) af D-vítamíni.

Innihald
Omega-3 fiskiolía, rakaefni (glýseról), gelatín, vatn, sætuefni (xylitol), ávaxtabragðefni, ýruefni (sellulósi), D-vítamín (kólekalsiferól), ýruefni (sojalesitín).
Hver perla inniheldur 600 mg af omega-3 fiskiolíu.
Inniheldur sætuefni.

Ráðlagður daglegur neysluskammtur
2-3 perlur fyrir börn og fullorðna 4 ára og eldri.

Innihald í 2 perlum                                   RDS*
 
   D-vítamín                     5 µg                 100%
 
Innihald í 3 perlum
 
   D-vítamín                     7,5 µg               150%
 

Næringarinnihald  2 perlur 3 perlur
Orka
49 kJ / 12 kkal
73 kJ / 18 kkal
Prótein
0,1 g
0,2 g
Kolvetni
0,2 g
0,3 g
Fita
1,2 g
1,8 g
    Mettuð fita
0,4 g
0,6 g
    Einómettuð fita
0,2 g
0,3 g
    Fjölómettuð fita
0,6 g
0,9 g
Samtals Omega-3
402 mg
603 mg
       EPA
192 mg
288 mg
       DHA
120 mg
180 mg
D-vítamín
5 µg (100% RDS*)
7,5 µg (150% RDS*)

*Hlutfall af ráðlögðum dagskammti samkvæmt reglugerð um merkingu næringargildis matvæla.
Lýðheilsustöð ráðleggur 10 µg af D-vítamíni á dag fyrir alla yngri en 61 árs og 15 µg fyrir 61 árs og eldri.

Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is