Omega-3 fiskiolía
Omega-3 fiskiolía er framleidd úr fiskitegundum sem eru
auðugar af ómega-3 fitusýrum. Hún kemur í 240 ml flöskum. Omega-3
frá LÝSI inniheldur ekki vítamín og má því taka með þorskalýsi og öðrum
tegundum af lýsi.
Áhrif ómega-3 fitusýra, einkum EPA og DHA, hafa verið
rannsökuð ítarlega og niðurstöður rannsóknanna birst í vísindaritum víða um
heim og jafnframt er oft fjallað um jákvæða eiginleika þeirra í fjölmiðlum.
Því hefur meðal annars verið haldið fram að ómega-3
fiskiolía hafi jákvæð áhrif á andlega heilsu og hún dragi úr liðverkjum og
morgunstirðleika. Ómega-3 fitusýrur hafa einnig góð áhrif á hjarta- og æðakerfi
auk þess að gegna mikilvægu hlutverki við uppbyggingu heila og miðtaugakerfs.
Þeir sem nota blóðþynnandi lyf skulu aðeins nota Omega-3 fiskiolíu í samráði við lækni.
| Ráðlagður daglegur neysluskammtur |
1 teskeið (5 ml).
|
| Innihald |
Omega-3 fiskiolía, sítrónubragðefni, þráavarnarefni (náttúruleg tókóferól).
|
Næringarinnihald í 5 ml
|
Orka
|
170 kJ / 41 kkal
|
Prótín
|
0 g
|
Kolvetni
|
0 g
|
| Fita |
4,6 g |
| Mettuð fita |
1,2 g |
| Einómettuð fita |
1,2 g |
| Fjölómettuð fita |
2,2 g |
Þar af
|
|
EPA
|
736 mg |
DHA
|
460 mg |
Frekari upplýsingar:
consumer@lysi.is