Lýsi + D & kalk

Hægt er að minnka líkur á beinþynningu á efri árum með því að fá nægilegt magn af D-vítamíni og kalki. Hætt er við að D-vítamín sé af skornum skammti í fæði Íslendinga og því er ráð að taka annaðhvort lýsi eða D-vítamínhylki til að tryggja nægjanlega neyslu þess, einkum á veturna. Í lýsi og flestum fjölvítamínum er hins vegar töluvert af A-vítamíni sem Íslendingar fá óþarflega mikið af. Hylki sem innihalda D-vítamín og æskilegar ómega-3 fitusýrur úr lýsi, án mikils A-vítamíns, koma sér því vel. Í pakkanum eru 30 dagskammtar.


Laufey Steingrímsdóttir, næringarfræðingur hjá Manneldisráði, segir að kannanir hafi sýnt að þeir sem drekka litla sem enga mjólk og borða lítið af mjólkurmat fá tæplega nóg kalk. Við slíkar aðstæður geta kalktöflur komið að gagni.

Lýsi með D-vítamíni
Lýsið inniheldur a.m.k. 30% af ómega-3 fitusýrum, aðallega EPA og DHA sem eru okkur lífsnauðsynlegar. Í lýsinu er einnig dagskammtur af D-vítamíni sem er nauðsynlegt til þess að líkaminn geti betur nýtt kalkið.

Kalk
Kalk er nauðsynlegt til að styrkja tennur og bein. Það er sérstaklega mikilvægt til að minnka líkur á beinþynningu. Einkum er brýnt fyrir ungar konur að huga að því að líkaminn fái nóg af kalki.

Hvert lýsishylki inniheldur: 1000 mg omega-3 fiskiolía, gelatín, rakaefni (glýseról), dl-alfa tókóferól asetat (E-vítamín), ýruefni (sojalesitín).
Hver kalktafla inniheldur: Kalsíum karbónat, maltódextrín, bindiefni (örkrystallaður sellulósi, natríum karmellósi), húðunarefni (HPMC), kekkjavarnarefni (stearic sýra, magnesíum stearat), rakaefni (glýseról).
Innihald í ráðlögðum daglegum neysluskammti
1 lýsishylki og 2 kalktöflur                               RDS*
D-vítamín                    10 µg                           200 %
E-vítamín                     2 mg                           17 %
Kalk                            800 mg                       100 %

Innihald í lýsishylki

Samtals Omega-3 fitusýrur**

350 mg   

EPA** 165 mg
DHA** 105 mg
D-vítamín 10 µg
E-vítamín 2 mg

Innihald í tveimur töflum
Kalk (kalsíumkarbónat) 800 mg

*Hlutfall af ráðlögðum dagskammti samkvæmt reglugerð um merkingu næringargildis matvæla.
**Þríglýseríð.
Lýðheilsustöð ráðleggur 10 µg af D-vítamíni á dag fyrir alla yngri en 61 árs.  Fyrir 61 árs og eldri ráðleggur Lýðheilsustöð 15 µg.


Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is