Lýsi & Liðamín Hyal-Joint®

Óþægindi eða verkir frá liðum geta dregið úr hreyfigetu og almennum gæðum daglegs lífs þeirra sem þjást af þeim. Lýsi og Liðamín Hyal-Joint® er samansett úr efnum sem talin eru hafa jákvæð áhrif á liðina og geta viðhaldið heilbrigði þeirra.

Hyal-Joint® (hyaluronsýra)
Í liðamótum er að finna seigfljótandi vökva sem nefnist liðvökvi. Hlutverk hans er að smyrja og viðhalda mýkt í liðamótum.
Hyaluronsýra er ein af meginefnum liðvökva og hana er einnig að finna í brjóski. Eitt mikilvægasta hlutverk hennar er að auka seigju liðvökvans, draga úr núningi og óþægindum og tryggja mýkt í hreyfingum liðamóta.

Kondróitínsúlfat
Kondróitínsúlfat er eitt algengasta byggingarefnið í liðbrjóski. Virkni kondróitíns er talin felast í því að hemja niðurbrotshvata sem brjóta niður brjósk í liðum. Það er einnig talið hamla bólgumyndun og vinna gegn slitgigt.

Ómega-3
Ómega-3 inniheldur fitusýrurnar EPA og DHA og talið er að ómega-3 geti dregið úr stirðleika á morgnana og verkjum.

Í lýsi og liðamíni Hyal-Joint® er einnig C-vítamín sem hefur hlutverki að gegna í framleiðslu líkamans á kollageni. Kollagen er prótein sem er meginuppistaðan í ýmsum tengivefjum líkamans.

Í lýsi og liðamíni Hyal-Joint® eru ekki A- og D-vítamín og því er óhætt fyrir þá sem taka lýsi að nota lýsi og liðamín á sama tíma.


Innihald í ráðlögðum daglegum neysluskammti
Eitt lýsishylki og tvær liðamíntöflur                            RDS*  
    C-vítamín                                          120 mg       150 %
Innihald í einni töflu
Hyal-Joint®
20 mg
Kondróitínsúlfat 200 mg
C-vítamín 60 mg


Innihald í einu hylki                                                    
Samtals Omega-3
620 mg
    EPA    
310 mg
    DHA    
205 mg

*Hlutfall af ráðlögðum dagskammti samkvæmt reglugerð um merkingu næringargildis matvæla.


Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is