Framleiðsla

Ný verksmiðja – einstök að uppbyggingu
Þrátt fyrir þá staðreynd að framleiðslu LÝSIS megi rekja áratugi aftur í tímann og að fyrirtækið væri ætíð í fremstu röð framleiðslufyrirtækja í heiminum var það tilkoma nýju verksmiðjunnar árið 2005 sem gerði gæfumuninn – hún á sér engan líka. Verksmiðjan er búin sérhæfðum tækjum til að vinna lýsi.

Framleiðsluferlið felst meðal annars í að skilja
  • lýsið frá lifrinni
  • vatn og óhreinindi úr lýsinu
  • verðmæt efni úr lýsinu

Lögð hefur verið áhersla á hönnun tækjanna þannig að þau lágmarki oxun lýsisins og fjarlægi lykt og bragð úr því með náttúrulegum aðferðum.

Nýja verksmiðjan gerir fyrirtækinu kleift að bjóða upp á fjölbreytt vöruval lýsisafurða hvort heldur um er að ræða þorskalýsi eða lýsi úr öðrum fisktegundum.  Árið 2008 var tekin í notkun framleiðlsulína fyrir þykkni sem gerir kleift að framleiða lýsi með hærra hlutfalli ómega-3 fitusýra en áður var unnt.  Er þetta gert með því að fjarlægja aðrar fitusýrur úr lýsinu.

Framleiðsla sérhæfðra lýsistegunda
Þar sem eftirspurn eftir nýjum tegundum lýsis hefur farið stigvaxandi hefur fyrirtækið gripið til þess ráðs að flytja inn hráefni til vinnslunnar víðs vegar að. Með því hefur fyrirtækið tekið forystu á sínu sviði, náð meiru út úr framleiðslutækjum og nýtt þann þekkingargrunn sem fyrir hendi er og þannig getað boðið viðskiptavinum fjölbreyttara úrval af heilsusamlegum vörum. Víðtæk sambönd Lýsis við innkaup hráefnanna, frábær verksmiðja og viðskiptavinir um allan heim tryggja fyrirtækinu forystu á sínu sviði um ókomin ár.

Aðgangur að hráefni
Það verður seint ofmetið hvers virði það er fyrirtækinu að hafa þróast og eflst sem hluti af öflugum sjávarútvegi Íslendinga með aðgangi að einum gjöfulustu fiskimiðum heims. Þorskurinn er þekktastur fiska við Ísland og loðna er hér í meiri mæli en annars staðar. Auk aðgangs að heimamiðum hefur fyrirtækið byggt upp öflug viðskiptasambönd við lönd eins og Noreg, Færeyjar, Tæland, Chile og Mexíkó.