Gæði 

Stjórnendum LÝSIS er ljóst að gæðin skipta öllu máli og því er kerfisbundin gæðastjórnun nauðsynlegur þáttur í starfsemi fyrirtækisins. Með það að leiðarljósi hefur fyrirtækið sett sér eftirfarandi markmið:

  • Að þjálfa og mennta starfsfólk á þann hátt að þekking og hæfileikar séu ávallt til staðar hvar sem er í fyrirtækinu.
  • Að framleiða ávallt vörur sem uppfylla væntingar og mæta kröfum viðskiptavina á hverjum tíma.
  • Að vera leiðandi í vöruþróun og rannsóknum sem skilar betri vörum til neytenda.
  • Að tryggja hluthöfum arð af fjárfestingu sinni að teknu tilliti til eðlilegs þróunar- og rannsóknakostnaðar.

Til að fylgja þessu eftir hefur fyrirtækið sett á fót viðurkennt gæðastjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðlegum staðli ISO 9001. Fyrirtækið er einnig vottað skv. BRC (British Retail Consortium) staðlinum.  Þá hefur LÝSI lyfjaframleiðsluleyfi til framleiðslu neytendavara.

Markmiðin með vottuðu gæðakerfi eru meðal annars að

  • allir starfsmenn taki þátt í framgangi gæðamála í fyrirtækinu
  • Rekstrarhandbók og Gæðahandbók tryggi aðgengi að upplýsingum um gæðamál
  • öllu starfsfólki verði kynnt gæðakerfið og hvernig það vinnur með útgáfu handbóka, kynningum og námskeiðum.

Þjálfun og aukin hæfni starfsfólks er forgangsmál. Markmiðið er að virkja einstaklinginn og auka framlag hans í rekstri fyrirtækisins. Áhersla verður lögð á enn meiri gæði samfara lækkun kostnaðar. Bætt nýting í framleiðslu næst með betri nýtingu hráefna og annarra framleiðsluþátta.