Markaðir

Heimamarkaður
Þrátt fyrir að LÝSI byggi starfsemi sína fyrst og fremst á útflutningi til nær 70 landa býr fyrirtækið að mikilvægum heimamarkaði sem það hefur þróað. LÝSI er með yfir 50% hlutdeild á íslenska markaðnum fyrir heilsuvörur. Ýmsar neytendavörur hafa verið þróaðar og kynntar og eru seldar í innlendum smásöluverslunum. Þar má nefna Krakkalýsi, þorskalýsi með sítrónu- og ávaxtabragði, omega-3 forte og álþynnupakkningar af omega-3, omega-3 forte, Heilsutvennu, Sportþrennu og fleira. Heimamarkaðurinn hefur þannig á margvíslegan hátt verið mikilvægur þróunarvettvangur fyrir LÝSI.


Útflutningur neytendavöru
Vörunum er pakkað í hinni nýju verksmiðju LÝSI í Reykjavík. Þær eru svo ýmist seldar undir vörumerkinu LYSI eða merkjum viðkomandi viðskiptavinar. Meðal landa, sem neytendavörur eru fluttar út til, eru Bandaríkin, Finnland, Pólland, Litháen, Lettland, Danmörk, Rússland, Þýskaland og Holland svo nokkur séu nefnd. Nýir markaðir eru svo að skapast í Miðausturlöndum og Asíu.

Útflutningur magnvöru
Magnvara er seld framleiðendum sem vinna frekar úr henni eða umpakka. Þá er að finna í löndum eins og Bretlandi, Indlandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Ástralíu, Kína, Svíþjóð og mörgum fleiri löndum. Helstu afurðirnar eru þorskalýsi, túnfisklýsi, laxalýsi, omega-3 lýsi, hákarlalýsi, skvalen, loðnulýsi og ýmsar mjöltegundir.