Rannsóknir og þróun

Síðustu fimmtán árin hefur LÝSI verið í forystu þegar kemur að rannsóknum og vöruþróun lýsisafurða.

Fyrirtækið hefur í langan tíma unnið með Háskóla Íslands og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins að ýmsum verkefnum.

Stjórnendur LÝSIS líta svo á að það skipti miklu að vera bæði leiðandi fyrirtæki á sviði rannsókna og þróunar annars vegar og sölu og markaðssetningar hins vegar og ná með því að tvinna saman þessa lykilþætti í rekstri fyrirtækisins.

Öll aðstaða til rannsókna og þróunar nýtur góðs af endurskipulagningu fyrirtækisins sem átti sér stað um 1980. Þá var rannsóknastofan og sú starfsemi sem þar fór fram  endurskipulögð frá grunni með stóraukinni áherslu á rannsóknir og vöruþróun.

LÝSI er álitið vera eitt af leiðandi fyrirtækjum á heimsvísu þegar kemur að þekkingu á lýsi og notkunarmöguleikum þess. Er það ekki síst að þakka öflugum grunni rannsóknastarfs til langs tíma ásamt samvinnu við mörg lyfjaframleiðslufyrirtæki og rannsóknastofnanir víða um heim.