Um Lýsi
LÝSI er nútímalegt fyrirtæki með langa og merka sögu. Það var stofnað árið 1938 og byggir fyrirtækið því á gríðarmikilli þekkingu sem safnast hefur í áranna rás. LÝSI hefur lagt áherslu á að fylgjast með nýjungum á hverjum tíma og er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði í heiminum. Vöruþróunar- og rannsóknadeild fyrirtækisins á sér fjörutíu ára langa sögu og á það ekki síst sinn þátt í því hversu framarlega fyrirtækið stendur á heimsvísu. Eigendur og æðstu stjórnendur LÝSIS hafa lagt áherslu á að tengja saman vöruþróun og markaðsstarfsemi sem leitt hefur til frábærs árangurs og aukins sóknarþunga með nýjar afurðir á nýja markaði.
|
 |
Sem leiðandi fyrirtæki leggur LÝSI mikla áherslu á gæði og gæðastjórnun við framleiðslu vörunnar. Varan er heilsuvara, ætluð til manneldis, og því er grundvallaratriði að tryggja að varan sé eins vönduð og unnt er. Umhverfið er hafið sem umlykur Ísland, kalt og hreint, en auk þess byggir fyrirtækið á hráefni úr öðrum heimsins höfum og nýtur þar mikilvægra sambanda við sjávarútvegsfyrirtæki í mörgum löndum.
Í apríl 2007 fékk Lýsi Útflutningsverðlaun forseta Íslands. LÝSI fékk verðlaunin „fyrir þann einstaka árangur sem fyrirtækið hefur náð í sölu- og markaðsmálum á afurðum úr lýsi og fyrir þá framsýni sem fyrirtækið hefur sýnt í vöruþróun og eflingu þekkingar og færni á sínu sviði.“