Óþægindi eða verkir frá liðum geta dregið úr hreyfigetu og almennum gæðum daglegs lífs þeirra sem þjást af þeim. Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® er samansett eftirfarandi efnum:
Hyal-Joint® (hyaluronsýra)
Í liðamótum er að finna seigfljótandi vökva sem nefnist liðvökvi. Hlutverk hans er að smyrja og viðhalda mýkt í liðamótum.
Hyaluronsýra er ein af meginefnum liðvökva og hana er einnig að finna í brjóski.
Kondróitínsúlfat
Kondróitínsúlfat (úr fiski) er eitt algengasta byggingarefnið í liðbrjóski. Í öllum liðum er liðbrjósk, sem er mýkra en bein og ásamt seigum liðvökvanum gefur það liðnum áreynslulausa mýkt.
Omega-3
Omega-3 forte er þykkni sem inniheldur meira magn af fitusýrunum EPA og DHA en aðrar Omega-3 vörur frá LÝSI. Fitusýrurnar eru okkur lífsnauðsynlegar sem þýðir að líkaminn getur ekki sjálfur framleitt þær. Þess vegna er mikilvægt að fá þær úr fæðu eða fæðubótarefnum.
Í Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® er einnig C-vítamín sem hefur hlutverki að gegna í framleiðslu líkamans á kollageni. Kollagen er prótein sem er meginuppistaðan í ýmsum tengivefjum líkamans.
Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® inniheldur ekki A- og D-vítamín og því er óhætt fyrir þá sem taka lýsi að nota Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® á sama tíma.
Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is
Ráðlagður daglegur neysluskammtur |
||
Fullorðnir | Eitt lýsishylki og tvær liðamíntöflur | NV* |
---|---|---|
C-vítamín | 120 mg | 150% |
*Hlutfall af næringarviðmiðunargildi fyrir fullorðna samkvæmt reglugerð. |
Innihald í einni töflu |
|
1 töflu | |
Hyal-Joint® | 20 mg |
Kondróitínsúlfat | 200 mg |
C-vítamín | 60 mg |
Innihald í einu hylki |
|
1 lýsishylki | |
Samtals Omega-3 fitusýrur | 620 mg |
EPA | 310 mg |
DHA | 205 mg |